Á Camera.is býðst öllum viðskiptavinum frí heimsending. Vörur eru sendar af starfsmönnum eða með Póstinum. Óski kaupandi eftir öðrum afhendingarmöguleikum þarf taka það fram í athugasemd í pöntunarferlinu. Markmiðið er að afhenda vörur innan viku og ekki seinna en 10 dögum eftir að pöntun er móttekin.
Vinsamlegast takið fram í athugasemd upplýsingar fyrir afhendingu vöru t.d. hvenær viðtakandi er heima, nánari upplýsingar um staðsetningu og utan höfuðborgarsvæðisins þarf að tilgreina flutningsaðila í athugasemd ef um sérstakar óskir er að ræða.
Vörur eru sendar til viðtakanda eftir upplýsingum sem kaupandi gefur í sínum aðgangi. Það er því afar mikilvægt að þessar upplýsingar séu réttar. Þetta gerir jafnframt viðskiptavinum kleift að senda vörur til þriðja aðila t.d. getur verið þægilegt að kaupa gjafir og láta senda þær beint til annarra viðtakanda.
Verð
Öll verð eru með VSK og eru með fyrirvara um innsláttarvillur eða gengisbreytingar. Sendingarkostnaður innanlands er innifalin í verðinu.
Greiðslur
Viðskiptavinum er boðið upp á að greiða með kreditkorti en einnig má greiða með bankamillifærslu en þá er varan send eftir að greiðsla hefur borist á bankareikning. Ef greiða á vöru með bankamillifærslu er í lagi að fá staðfestingu fyrir vöruafhendingu áður en millifærslan er framkvæmd. Að lokum er möguleiki á að greiða við afhendingu. Reglan er þó sú að greidd er a.m.k. 20% trygging af verði pöntunnar og síðan afganginn við afhendingu. Þá er einnig mögulegt að greiða með peningum. Vinsamlega hafið samband ef um séróskir er að ræða varðandi greiðslur.
Kortalán
Korthöfum býðst að taka kortalán gegnum Camera.is sem er ódýr, einföld og örugg greiðsludreifing. Korthafi getur nýtt sér Kortalán til greiðsluskiptingar í 3 til 36 mánuði vegna stærri innkaupa. VISA korthafar tengdir Vildarklúbbi Icelandair fá veltutengda punkta af Kortalánum.
Hámarksheimildir miðast við úttektarheimild, skuldastöðu og viðskiptasögu korthafa, þó að hámarki 500.000 kr. Vinsamlega takið fram í athugasemd þegar gengið er frá kaupum hvernig á að skipta greiðslunni 3-36 mánuðir. Nánar um kortalán hjá http://valitor.is/?PageID=1233.
Ábyrgð
Ábyrgð nær til framleiðslugalla og efnisgalla á vörum sem seldar eru á Camera.is. Ábyrgðartími er í tvö ár frá útgáfudegi reiknings sem jafnframt gildir sem ábyrgðaskírteini. Camera.is ber á engan hátt ábyrgð á slæmri eða rangri meðhöndlun vörunnar eða skemmdum í flutningi. Camera.is er ekki ábyrg fyrir afleiddum skaða sem rekja má til gallaðrar vöru. Viðgerðir vegna ábyrgða skulu fara fram á verkstæði Camera.is eða öðru verkstæði sem Camera.is samþykkir. Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð. Vara fellur úr ábyrgð ef annar en viðgerðaraðili Camera.is gerir við vöru eða gerir tilraun til viðgerðar.
Rafrás ehf. er viðgerðaraðili Camera.is.
Skilaréttur
Skilaréttur er í 10 daga frá afhendingardegi á vörum sem pantaðar eru í gegnum vefverslun Camera.is. Vörum sem skilað er skulu vera í upprunalegum pakkningum og í góðu ástandi, órofið innsigli og allir fylgihlutir með. Camera.is áskilur sér rétt til að yfirfara vörur áður en þær eru teknar til baka. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 10 dögum er hún tekin til baka á söluverði reiknings.